Forsíða

Um okkur

Vörur

Könnun

Fjárfestar

Hafðu samband



Vörur:

Af hverju kanínukjöt? Kanínukjöt inniheldur minni fitu og kólesteról en er með hátt hlutfall af eggjahvítu (próteins) sem gerir kjötið næringarríkara. Lágt fituinnihaldið einkennist samt sem áður af háu hlutfalli fjölómettaðra fitusýra sem gerir kjötið að góðum kosti fyrir neytendur sem vilja huga að heilsu sinni. Kanínukjöt minnir á kjúkling bæði varðandi lit og áferð en inniheldur minna púrin og fleiri steinefni, vitamin B og E sem og járn.



Um er að ræða meðaltölur miðað við 100g af kjöti.

Ólíkt kjúklingaræktinni þar sem dýrin eru tilbúin til slátrunar eftir 6 vikur, tekur það 5 mánuði hjá kanínum sem fóðraðar eru á náttúrulegan hátt. Kjöt þeirra er þá hins vegar miklu safaríkara og gómsætara.

Vitað er að íþróttamenn kunna sérstaklega að meta þessi kjöttegund vegna þess hvað hún inniheldur hátt hlutfall af eggjahvítu en lágt hlutfall af fitu. Sama gildir um fólk sem þarf að fylgja hitaeiningasnauðri næringaráætlun. Kanínukjöt nýtur einnig vaxandi vinsælda hjá þeim sem vilja léttan sælkeramat þar sem kjötið gefur svo margvíslega möguleika á matreiðslu.

Og síðast en ekki síst þá er kanínukjöt ekki einungis gott fyrir þá sem velja heilbrigðan lífsstíl heldur er það einnig einstaklega ljúffengt og safaríkt kjöt sem gerir það að frábærum valkosti á íslenskum kjötmarkaði.