|
Um okkur:
Hugmyndin á bak við stofnun þessa fyrirtækis er að rækta kaninur til
kjötvinnslu á Íslandi.
Hingað til hafa kanínur á Íslandi einungis verið ræktaðar vegna skinna og
ullar.
Að markaðsetja kanínukjöt bæði til veitingastaða og beint til neytenda er
ný hugmynd hér á landi. Birgit Kositzke, sem hefur verið búsett í
Húnaþingi vestra síðan 2007, þróaði hugmyndina.
Stefnt er reka kanínubú með tæplega 250 lífdýr og tæplega 6000 sláturdýr.
Til ræktunar verða notaðar tvær tegundar, innlendar holdakanínur og
innfluttar svokallaðar Helle Grosssilber (Silver Gray).
Fyrirtækið verður staðsett í Húnarþingi vestra og leita forsvarsmenn þess
nú þegar að viðeigandi húsnæði til ræktunar sem býður einnig möguleika til
stækkunar. Ef það kemur í ljós að núverandi sláturhús á staðnum fær ekki
tilskilin leyfi, er ætlað að innrétta eigið sláturhús í samræmi við
reglugerðir Evrópusambandsins.
Fyrirtæki mun markaðssetja vörurnar í samstarfi við Kjöthornið.is.
Sótt hefur verið um öll tilskilin leyfi bæði hjá Matvælastofnun sem og
Sjávar- og landbúnaðasráðuneytinu.
|