Forsíða

Um okkur

Vörur

Könnun

Fjárfestar

Hafðu samband



Kanínur eru spendýr af héraætt.

Kanínur eru jurtaætur með fjórar framtennur, ólíkt öðrum nagdýrum sem eru aðeins með tvær. Tennur nagdýra vaxa um leið og þær eyðast vegna þess að þær eru rótopnar. Meðalaldur þeirra er fimm til þrettán ár og kallast kvendýrið kæna og karldýrið kani. Kanínur verða kynþroska fjögurra til sex mánaða og er meðganga þeirra um það bil þrjátíu dagar. Ungafjöldinn getur verið mismunandi eða tveir til tólf ungar og geta kanínur æxlast strax eftir got og getur stofn þeirra því margfaldast við góð skilyrði. Kanínur eru víða ræktaðar sem húsdýr.